undarlegheitin liggja alls staðar í leyni. og ég sem hélt að ekkert kæmi mér lengur á óvart.
það er gaman að horfa á gettu betur. það eina sem þá ágætu þætti vantar núna er okkar undurfagra þórunn gréta við hlið davíðs þórs. ekki að núverandi stigavörður standi sig ekki ágætlega, ég sé bara fyrir mér að þórunn tæki sig afarvel út í þessu hlutverki. svo mætti reyndar líka víxla hlutverkunum, þórunn gréta getur samið allar spurningarnar og davíð þór verið stigavörður...
jón geir kemur fram í atriði í x-faktor á föstudaginn. ég fékk reyndar ekki í gegn að hann yrði ber að ofan í leðurbuxum en þrátt fyrir það ætti þetta að verða hin áhugaverðasta skemmtun.
ég ætla að leikstýra allavega einum þætti í apríldagskrá hugleiks, verði spennandi hlutir á vegi mínum er aldrei að vita hvort ég bæti við mig öðrum þætti. verst að óskaparið mitt í hlutverk getur engan vegin tekið þau að sér. svo langar mig að líka að leika ef eitthvað bitastætt er í boði. ekki seinna vænna að vakna með vorinu.
ég get varla orða bundist yfir nýja jóróvisjónmyndbandinu. að lita hinn stórfenglega makka eiríks haukssonar dökkleitann jaðrar við föðurlandssvik í mínum huga. ég get eiginlega ekki beðið eftir nördaþættinum til að sjá hvað finnski ofurhomminn segir um þetta mál. þarna hefur fallið blettur á leikstjórnarferil Gunnars Björns..;þ