úff. viku dauðans að ljúka. úlfhildur og jón geir eru búin að vera svo veik að hvorugt hefur verið með meðvitund síðan á þriðjudag. ég er búin að þvo öll fötin hennar úlfhildar tvisvar og allnokkur sett af rúmfötum og handklæðum líka. set á minnisblaðið að finna upp baðrúm fyrir ungabörn með uppsölu-og niðurgangspestir. hægt að taka tappann úr og skola reglulega. ég er þess vegna illa sofin, úldin og þreytt. það toppar líka alveg vikuna að jg fer til færeyja seinnipartinn í dag og verður fram á mánudag. mig langar ekkert með. neinei.
annars er plöggvika; nýjasta leikverk hugleiks verður frumsýnt annað kvöld. verkið er samstarfsverk með lk og heitir bingó. yfirnorn ásta hefur unnið þrekvirki og búið til þetta líka flotta kynningarmyndband, það má sjá hér (ég get ekki sett inn hlekk beint af einhverjum ástæðum). tek alveg undir með henni að hún ætti að skella sér í nám. get lofað áhorfendum góðri skemmtun í hjáleigunni, einvalalið sem að sýningunni stendur. ótrúlegt hvað bingó getur verið dramatískt. | fangor 11:32