ný vika hafin með miklum ágætum. ein af uppáhaldsfrænkunum mínum kom í heimsókn og nú er bróðir minn snúinn aftur úr fjarskanum. hann ætlar að heimsækja okkur á morgun, húrra fyrir því. litlasta bróður minn hef ég aftur ekki séð nema í mýflugumynd svo vikum skipti og þykir vont.
fjölskyldan ætlar að rúnta á ísafjörð komandi fimmtudagskvöld og dvelja þar yfir páskana. nóg af tónlist í boði en ég er spenntust fyrir stelpubandinu hennar ylfu. flest annað er að hippokúla yfir sig og ég er orðin leið á því. langar miklu frekar á tónleika með hraun og ljótu hálfvitunum með stóóra rauðvínsflösku en maður fær víst ekki alltaf allt sem maður vill. þrátt fyrir takmarkaðan áhuga minn á tónleikunum hlakka ég til að hitta familíuna fyrir vestan.
krúttlegasta andsvar vikunnar kom tvímælalaust frá jógvan hinum fagra þegar hann var spurður að því hvort hann kynni að dansa. hann svaraði því með hógværu: "já, aðeins, en ég er líka lærður förðunarfræðingur." hann er ekkert kynvilltur, neineinei...
( ég játa fúslega fordóma mína í garð karlkyns hárgreiðslu/ förðunarmeistara sem hafa hlotið íðilfegurð í vöggugjöf, þeir geta auðvitað verið kynvísir en ég þekki engin dæmi slíks ) | fangor 21:28