afhverju í ósköpunum þarf alltaf allt að gerast á sama tíma? ég hef ekki tíma til að anda næstu tvær vikur. vantar klón hið snarasta til að sjá um barnið mitt meðan ég æfi allt sem þarf að æfa og sýni það sem sýna þarf.
hér getur að líta dýrin í hálsaskógi, við frumsýnum sunnudaginn 27.maí og þá verð ég vinalega og sjálfumglaða sníkjudýrið lilli klifurmús. það verða auðvitað allir að sjá því ég fæ lítið að leika lilla í sumar. mestmegnis verð ég góðborgarinn marteinn skógarmús en hef smá viðkomu í abbamúsinni. (bjór fyrir þann sem fyrstur fattar þennan..) síðan er tónlistardagskrá hugleiks þriðjudaginn 29 maí og föstudaginn 1.júní. aðalfundur hugleiks er fimmtudaginn þrítugasta og jón geir er að spila á minningartónleikum um jeff buckley téð þriðjudagskvöld. 29.
í dag kom hraunplatan i can't belive it's not happiness út eftir langa bið. útgáfutónleikarnir verða næsta föstudagskvöld, 25. maí í þjóðleikhúskjallaranum. laugardaginn annan júní brunum við svo vestur á þingeyri til að spila sjómannadagsball og knúsa tilfallandi ættingja.