þegar maður á annað borð rífur sig upp er best að gera að með stæl. hóf gærdaginn á líkamsæfingum í kópavogi, næst gönguferð um smárann sem var fylgt eftir með tónlistaræfingu, síðan burtfarartónleikum hjá matta hvaðan ég dreif mig á sýningu á söngleiknum legi í þjóðleikhúsinu. ágætis menningarútilega bara. þessi dagur leiddi eftirfarandi í ljós: ég er bæði eldri og feitari en ég hélt. er þó hreyfanlegri en við mætti búast miðað við aldur og mörstuðul. þetta þýðir að ég get gert þau sirkustrikk sem þarf til að skila lilla klifurmús þokkalega á frumsýningu. sem er svosem ágætt. en þar sem ég sit og finn fyrir harðsperrum á undarlegustu stöðum hef ég ákveðið að í lok sumars komist ég aftur í araba-flikk-heljar án þess að blása úr nös. jahahá.