allt að gerast. æfingar ganga, barnið stækkar, ég er komin með útþrána. þessa sem fær mig til að langa að flytja mig út í garð komist ég ekki lengra út í náttúruna og vera þar fram í ágúst. keyra eitthvað út í buskann, sofa í tjaldi eða bara undir berum himni og vakna með döggina á andlitinu. endalausar nætur.
nenni hvorki að blogga um júróvisjón né kosningar. hvort tveggja hálf glatað.
það er skrímsl í stofunni minni! 3 metra löng býflugnadrottning hefur ráfað inn undir gardínurnar og virðist líkleg til að færa sig lengra inn í stofuna. ég er skíthrædd við þessi fluguskrímsli á gamals aldri og sé enga lógík í því eins og ég var mikil pöddugæla þegar ég var yngri. kannski get ég talið mér trú um að barninu mínu stafi stórhætta af henni og ég þurfi því að virkja adrenalínpumpurnar og verjast.
eða ekki. ég verð augljóslega að fara að fóðra krossköngulærnar mínar betur svo þær forði mér frá frekari innrásum af þessu tagi. | fangor 21:11