jæja...þá hafa dýrin verið frumsýnd og við tekur tónlistardagskráin. hún verður frumsýnd annað kvöld í kjallaranum og hefst kl. 9. ég get lofað hinni bestu skemmtan. dagskráin er svo flutt aftur á föstudagskvöldið og þá sitjum við að sumbli eins lengi og góða konan í kjallaranum lofar..:Þ.
morgundeginum verður eytt í áfallahjálp til handa úlfhildi sem hefur verið nær munaðarlaus undanfarna viku og skildi ekkert í því hvers vegna foreldrar hennar hurfu allt í einu. ekki það að hún var í góðum höndum hjá bestu mömmu í heimi sem kom sérstaklega að austan til að vera með krúttfríði meðan við vorum að æfa og vesenast.
ég er alveg að komast yfir þessa sértæku fóbíu mína fyrir að syngja fyrir framan fólk án þess að vera í karakter. það er bara búið að taka mig fimmtán ár. næsta skref hlýtur þá að vera að fá einhvern til að kenna mér að gera það almennilega. | fangor 21:43