helgin gekk svona líka ljómandi vel þó að veðurstofan hafi svikið mig um sólarglennuna. barnið var hið þægasta í pössuninni og jg sneri aftur í heilu lagi frá þýskalandi. artífartið fór reyndar fjandans til sökum rigningar-og þrumuveðurs svo herlegheitin verða flutt þann 30.júní. þá ætla ég að fara með til útlandsins ef tengdó geta haft úlfhildi yfir helgina. það verður langþráð frí.
við mægður vorum úti í veðrinu í allan dag og ég er sólbrunnin. áts. | fangor 21:31