margt góðra gesta hefur litið við undanfarna viku, ber þar helst að nefna þá félaga snorgil og kisa sem ég hef hvorugan séð í háa herrans tíð.
snorgill fer mikinn í pistli dagsins. það er svosem margt í mörgu en á meðan að konur ganga ennþá með börn er ekkert til sem heitir algert jafnrétti kynjanna. einfalt.
undirbúningur fyrir frekari dýrasýningar ágætlega á veg kominn. fastar sýningar kl 6 á miðvikudögum í dalnum og svo þvælumst við um eftir hentugleikum. við verðum til dæmis á akureyri 17.júní, þá sýnum við í kjarnaskógi.
hvað varð annars um sumarið sem hófst hér fyrir helgi ? fyrst fýkur suðurlandsundirlendið yfir mann og svo falla skýin eins og þeim sé borgað fyrir það.
það eru komnar aukapersónur í söguna af goddi og galdralurkinum, þær bullinprúð og röflinfríð.