mikið óskaplega var nú gaman um helgina. brúðkaupið hjá áslaugu og matta var dásamlegt, athöfnin skemmtileg og veislan hin prýðilegasta. eftir veislu fórum við jg út á álftanes og spiluðum í ammli, héldum svo á kofann og dönsuðum eins og vindurinn. stemmningin var þó orðin dálítið skrítin þar á köflum svo við flúðum heim um fjögurleytið. sunnudagurinn allur var hin notalegasti. í morgun leit út fyrir að pestin hefði náð mér en svo virðist sem hún sé á hröðu undanhaldi svo ég ætla að fara með úlfhildi í gönguferð um skóginn á eftir, hún komst ekki til dagmömmunnar í morgun vegna veikinda þar á bæ svo hún þarf að hanga heima með mér og það er lítið gaman að hanga inni þega sólin skín. eftir óveður undanfarinna daga þorir maður heldur ekki annað en að stinga út nefinu þegar gula fíflið lætur sjá sig, hver veit hvenær það gerist næst..
meðan ég man: ég er að taka til í bókasafninu mínu. hvern vantar eitthvað að lesa? | fangor 14:13