til hamingju með silfrið! aldrei þessu vant vorum við foreldrarnir vöknuð á undan litla grís í morgun til að fylgjast með. nokkuð hress þar sem við eyddum kvöldinu heima við menningarlega iðju. við brugðum okkur reyndar í stutta menningarheimsókn til höfuðborgarinnar í gær, drukkum súkkulaði hjá þórunni grétu og davíð hvaðan við héldum á svalatónleika hraunliða sem heppnuðust ágætlega. þetta þótti mér fyndið... | fangor 19:16