við erum í fríi og höfum það afskaplega notalegt. jg er að verða eðlilegri í framan eftir endajaxlatökuna. hann hefur, eins og hann orðaði það sjálfur "verið eins og hamstur hægra megin". afskaplega smart. við hjónakornin fórum út á lífið á gær og skemmtum okkur konunglega í góðum félagsskap. úlfhildur fékk frænkudag með maríu þar sem þær fóru að fóðra fugla og skoða róluvelli svo fjölskyldan hefur heilt á litið haft það afskaplega huggulegt um helgina. byrja aftur í vinnu á þriðjudag og við förum næst af bæ afmælishelgina mína 15-17 ágúst. hraunliðar eru að spila á djúpuvíkurhátíð. ég hef ekki komið norðureftir í tvö ár svo ég hlakka til. | fangor 19:20