ég mótmæli harðlega heitinu "flísbylting". flís er c.a 100% gerfiefni svo mér þykir það einhvern vegin óviðeigandi í þessu samhengi,, ég sé fyrir mér eftirmælin nokkrum áratugum seinna þegar gervigóðærið sem endaði í kreppu var leyst með gerfiefnabyltingunni...svei bara. heldur langar mig að taka þátt í lopabyltingunni. íslenska ullin hefur hlýjað okkur gegnum aldirnar, endist vel, er falleg og má brúka til margra hluta auk þess sem hún hentar vel til útflutnings. ég kýs heldur að klæðast fallegri lopapeysu en flísi, það er eitthvað svo...norskt. hvað næst, hokrum við í hyttum upp um öll fjöll? hjólaskíði? maður spyr sig. svo er víst viðeigandi samkvæmt varríusi að játa góðærissyndir sínar. mínar eru eftirfarandi: ég keypti mér íbúð í miðbænum fyrir hækkun sem ég seldi fyrir raðhús í sveitinni þegar íbúðaverð í miðbænum rauk upp í heimskulegar hæðir. fékk þrjúhundruð þúsund á milli og eyddi þeim í vitleysu eins og ferðalög innanlands og almennan viðlegubúnað handa barninu mínu. ég hef farið til útlanda í boði foreldra minna síðustu þrenn jól. hef keypt mér bækur í óhófi. (það ku hægt að borða bækur svo nú flokkast þetta sem fyrirhyggja, er það ekki annars?) ég hef borðað góðan mat og drukkið góð rauðvín í talsverðu magni eins og sést á mér. stærsta góðærissyndin mín telst vera jeppinn sem við keyrum á en hann keyptum við í félagi við foreldra mína og seldum eldri bílinn uppí. hann er tjónabíll og því á afar hagstæðu verði á sínum tíma. nú getum við ekki selt hann fyrir sparneytnari bíl því samkvæmt nýjum reglum má ekki færa til lán eða lána vegna tjónabíla. ( við fjárfestum því í strætókorti sem gildir í þrjá mánuði. það kostar nefnilega minna en að fylla einusinni á jeppann.) þarmeð telst það upptalið, held ég.
ástæða þess að ég er vakandi á ókristilegum tíma? "vaxandi cron. verkir í æxlunarfærum" eins og það var orðað á kvittuninni sem ég fékk eftir síðustu aðgerð. ég hef einhvernvegin aldrei litið á eggjastokkinn minn sem æxlunarfæri beint, en íslenskukunnáttu minni hefur hrakað svo ört eftir að ég byrjaði að vinna á leikskólanum að það er líklega ekkert mark á mér takandi hvort eð er. þannig. | fangor 05:25