aumingja jg var rúllað inn í skurðaðgerð áðan, fyrsta ágiskun lækna var að hann væri með gallsteina en álit breyttist og botnlangabólga talin líklegri. ég bíð spennt eftir símtali frá lækninum. hann fær vonandi að fara heim á morgun til að fagna áramótum. við ákváðum að hafa þetta táknrænan skurð, út með það slæma og inn með það góða fyrir nýjárið. uppsafnaðri kreppustreitu og öðrum ófögnuði skal hent með botnlangagarminum. einn, tveir og trix! | fangor 02:05