það er bara byltingin. mér þætti persónulega voða gott að fá lagðar fram skipulagðar lausnir á vandamálum heimsins áður en alþingishúsið verður rýmt, hverjir ætla að vera hvar, stjórna hverju og leysa úr hvers vandamálum. það er vissulega komið nóg af stjórnarfarslegu bulli, en hvað er fólk að bjóða upp á í staðin? og hvaða fólk? ekki vil ég losna við jóhönnu sigurðardóttur út af þingi eins og staðan er í dag. hiklaust ætti að vera búið að setja seðlabankastjóra í gapastokkinn þar sem hann er aðhlátursefni um allan heim, en ég sé ekki hvaða akkur er í því að henda þinginu út strax á morgun. það þarf að setja í nefndir, ráð og stöður og vinna alla pappírsvinnuna til þess að hægt sé að gera eitthvað af viti. er þetta besti tíminn til þess? kosningar í haust takk, ég auglýsi eftir fólki með raunhæfar lausnir. egg og tómatar eru bara ekki nóg. | fangor 19:52