það er greinilega ekki hollt að vera formaður stjórnmálaflokks á íslandi. 9 maí hljómar ágætlega sem kosningadagur í mínum huga. það gefst tími fyrir öll þessi nýju öfl sem eru að vinna að nýrri stjórnarskrá og breytingum á grundvallagerð samfélagsins að koma sínum málefnum og markmiðum í framkvæmanlegt form. ef það verður kosið á morgun verða nefnilega engar breytingar á neinu. það er engin tilviljun að vg vilja kjósa strax . ef breytingar eiga að verða á flokkakerfinu og á þingi þarf fólk að vanda sig við framsetningu nýrra valkosta. í síðustu alþingiskosningum stóð enginn fýsilegur kostur til boða í mínum huga þar sem flokkakerfið hefur löngu gengið sér til húðar. ég vil geta kosið einstaklinga, ekki hópa. ég bind vonir við aðila úr neyðarstjórn kvenna og einstaklinga sem hafa verið skipuleggjendur búsáhaldabyltingarinnar. mér finnst það að garga kosningar strax vera skýr krafa um að sama úrelta flokkakerfið og draslið haldi áfram. því það breytist ekkert nema hausarnir ef við kjósum núna. | fangor 18:35