þetta er einkar athyglivert. samkvæmt þessu ætti að vera hægt að stinga fjármálaráðherra inn fyrir vanrækslu í starfi. það er einnig ljóst að umsókn um aðild að evrópusambandinu varðar allt að tveggja ára fangelsisvist.
ég hlakka til að sjá uppkastið að nýju stjórnarskránni sem er í smíðum á kaffihúsum víðs vegar um borgina og á snjáldurskinnu. svo hlakka ég til að sjá hverjir ætla að skipa neyðarstjórnina. hvernig verður þjóðaratkvæðagreiðslunni um hana háttað? ég óska áhugafólki um bætta hrynvitund góðrar skemmtunar á austurvelli. alltaf gaman að stompa.
p.s. einhverjir efuðust um tilvist hugtaksins "flísbylting". nú hefur þessi nafngiftaróhroði meira að segja borist út fyrir landsteinana. má maður þá biðja um íslensku ullina en ekki innflutt plastefni sem enginn hefur efni á að kaupa lengur. lopabylting er miklu mun kúlli. | fangor 17:44