almáttugur það eru að koma jól. Jólahrun Hugleiks verður sýnt á Eyjaslóðinni annað kvöld og mánudags, þar verða 3 leikþættir og allnokkur söngatriði fram borin til að létta fólki lund og stytta stundir. ég ætla að syngja við annan mann og eina konu. láta eins og bjáni þess á milli. það má gera ráð fyrir að verði gaman. að auki verður hægt að maula mandarínur og piparkökur félaginu til styrktar. gagnist vel. nann-c | fangor 10:36